Tillögur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að lækka matvælaverð o.fl.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til víðtækra aðgerða til þess að lækka matvælaverð hér á landi:
-
Vörugjöld af innlendum og innfluttum matvælum, öðrum en sykri og sætindum, verða felld niður að fullu 1. mars 2007.
-
Virðisaukaskattur af matvælum verður lækkaður úr 14% í 7% frá 1. mars 2007.
-
Virðisaukaskattur af annarri þjónustu og vörum í 14% þrepi (bækur, tímarit, blöð, húshitun, hótelgisting) verður lækkaður í 7%.
-
Virðisaukaskattur af öðrum matvælum sem hefur verið 24,5% verður lækkaður í 7% frá sama tíma.
-
Virðisaukaskattur af veitingaþjónustu verður lækkaður úr 24,5% í 7% frá sama tíma.
-
Almennir tollar á innfluttum kjötvörum úr 2. kafla tollskrár verða lækkaðir um allt að 40% frá 1. mars 2007. Samhliða þessu verður áfram unnið að frekari gagnkvæmum tollalækkunum og bættum markaðsaðgangi gagnvart helstu viðskiptalöndum Íslands í milliríkjasamningum sem tryggja jafnframt útflutningshagsmuni íslensks atvinnulífs.
-
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa ákveðið raunlækkun á heildsöluverði mjólkurvara á næstu 12 mánuðum sem verði náð með óbreyttu verði á þessum tíma, hinu sama og ákveðið var af verðlagsnefnd búvöru þann 1. janúar 2006.
-
Áætlað er að þessar aðgerðir geti leitt til tæplega 16% lækkunar matvælaverðs og 2,3% lækkunar neysluverðsvísitölu á næsta ári. Auk þess mun ákvörðun um að lækka virðisaukaskatt á öðrum vörum og þjónustu úr 14% í 7% (bækur, hótelgisting, húshitun o.fl.) leiða til um 0,4% lækkunar í viðbót þannig að heildaráhrif þessara aðgerða eru metin til 2,7% lækkunar neysluverðsvísitölu á næsta ári. Kaupmáttur heimilanna eykst að sama skapi. Áhrif þessara aðgerða á afkomu ríkissjóðs eru metin á um 7 milljarða króna m.v. heilt ár og tæplega 6 milljarða árið 2007.
-
Með þessari lækkun væri matvælaverð á Íslandi orðið sambærilegt við meðalverð á matvælum á Norðurlöndunum miðað við upplýsingar um matvælaverð frá Evrópsku hagstofunni (Eurostat).
-
Verðlagseftirlit almennings er mjög mikilvægt til að tryggja framgang þeirra kjarabóta sem ríkisstjórnin hefur nú ákveðið. Miklu skiptir að ekki verði hækkanir á almennu matvöruverði á næstu mánuðum þangað til ákvarðanir ríkisstjórnarinnar koma til framkvæmda. Viðskiptaráðherra mun af því tilefni mælast til þess við Neytendastofu og verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands að fylgjast mjög náið með verðlagi í smásöluverslunum á næstu mánuðum og misserum. Sömuleiðis mun viðskiptaráðherra mælast til þess við Samkeppniseftirlitið að það fylgist vel með þróun samkeppnisaðstæðna á smásölumarkaði með matvöru.
Reykjavík 9. október 2006