Ríkiskassinn.is uppfærður
Fjármálaráðuneytið vill vekja athygli á að Ríkiskassinn.is hefur verið uppfærður.
Meginefni vefsins er uppfært í samræmi við ríkisreikning 2005 en kafli um útgjöld ráðuneyta er í samræmi við fjárlög 2006.
Auk þess vill ráðuneytið benda á:
- Hvað kostar..? sem sýnir dæmi um kostnað við þjónustu
- Orðskýringar um ríkisfjármál
- Spurningaleik
Ríkiskassinn.is veitir yfirsýn yfir meginatriði í ríkisrekstri og efnahagsmálum. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik og yfirlit um ríkisbúskapinn, verkefni ríkisins, tekjur þess, eignir og skuldir.
Allar ábendingar um efni og framsetningu vefsins eru vel þegnar og sendist á vefstjóra ([email protected]).