Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2006 Innviðaráðuneytið

300 milljónir króna fari í landkynningu árlega

Ferðamálaráð samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að beina því til samgönguráðherra að fjárframlög til landkynningar á næsta ári verði stóraukin og að stefnt skuli að því að fjármunir til markaðssóknar verði um 300 milljónir króna árlega. Sturla Böðvarsson kveðst fagna þessum tillögum sem hann hyggst skoða nánar og vinna úr.

Þá leggur ferðamálaráð til að ráðist verði þegar í stað í rannsókn á vegum hlutlauss aðila til að fá heildarmynd af áhrifum hvalveiða í atvinnuskyni á íslenska ferðaþjónustu og ímynd landsins á erlendum mörkuðum. Einnig að kannaðar verði skoðanir almennings sem og söluaðila ferðaþjónustu á erlendum mörkuðum.

Ferðamálaráð bendir einnig á að við endurskoðun laga um hvalveiðar nr. 26/1949 verði tekið tillit til þarfa og hagsmuna ferðaþjónustu, meðal annars hvalaskoðunarfyrirtækja og að haft verði samráð við ferðamálaráð og/eða samráðshóp hagsmunaaðila við framkvæmd tillagna ráðsins.

Sturla Böðvarsson segir brýnt að auka kynningu á Íslandi erlendis, ferðaþjónustan sé Íslendingum mikilvæg atvinnugrein sem leggi mikið til þjóðarbúsins. Hann segir að nýjar atvinnugreinar hafi orðið til frá því lög um hvalveiðar voru sett, til dæmis hvalaskoðunarfyrirtæki, og gera verði ráð fyrir því að ólíkar atvinnugreinar geti fengið að njóta sín. ,,Ferðaþjónustan á Íslandi á að halda áfram að sækja fram. Hún hefur til þess alla burði og með nokkrum stuðningi stjórnvalda og öflugu markaðsstarfi hef ég fulla trú á því að atvinnugreinin standi áfram vel að vígi,” segir samgönguráðherra.

Samkvæmt lögum um skipan ferðamála nr. 74/2005 er það meðal hlutverka ferðamálaráðs að leggja fyrir samgönguráðherra tillögur til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar. Einnig segir svo í lögunum: ,,Jafnframt skal ferðamálaráð vera ráðherra til ráðgjafar um áætlanir í ferðamálum. Ferðamálaráð skal veita umsagnir um breytingar á lögum og reglum er varða ferðamál og annað sem ráðherra felur því eða ráðið telur ástæðu til að taka upp í þágu ferðaþjónustunnar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum