Euronews 15, fréttabréf og kynningarbæklingur Evrópumiðstöðvar fyrir þróun í sérkennslu
Til grunnskóla, framhaldsskóla, skólaskrifstofa og ýmissa annarra aðila
Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), EuroNews nr. 15, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni.
Í þessu tölublaði EuroNews er fjallað um skýrslu Evrópumiðstöðvarinnar ,,Skjót afskipti: Rannsókn á aðstæðum í Evrópu”. Einnig er hjálagður kynningarbæklingur um starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar.
Þess er vænst að þetta efni verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.
Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar en þar er aðgengilegt margs konar efni um sérkennslumál í Evrópu, alls konar samantektir og skýrslur ásamt upplýsingum um sérkennslumál í einstökum Evrópulöndum www.european-agency.org .
Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Fyrirspurnum skal beint til hennar í netfangið: [email protected]