Dagskrá menntamálaráðherra á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2006
Síðastliðin ár hefur skapast sú hefð að menntamálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í einu ákveðnu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu. Hátíðardagskrá og afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar auk tveggja sérstakra viðurkenninga fyrir störf í þágu íslensks máls er einnig haldin í því sveitarfélagi. Síðustu tvö ár hefur ráðherra heimsótt Ísafjörð og Reykjanesbæ og nú í ár verður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í Kópavogi. Auk þess að heimsækja Kópavog mun ráðherra opna réttritunarvef hjá ReykjavíkurAkademíunni ásamt því að opna formlega leitaraðgang að 4. útgáfu Tölvuorðasafns á vefsetri Skýrslutæknifélags Íslands, www.sky.is.
Eftirfarandi dagskrá menntamálaráðherra 16. nóvember er send fjölmiðlum til upplýsingar:
Heimsóknir í Kópavog:
- 09:00 Leikskólinn Álfaheiði, Álfaheiði 46
- 09:45 Lindaskóli, Núpalind 7
- 11:15 Salurinn, Hamraborg 6
- 12:20 Gerðarsafn, Hamraborg 4
ReykjavíkurAkademían:
- 14:00 Heimsókn í ReykjavíkurAkademíuna, Hringbraut 121
Ráðherra opnar formlega réttritunarvefinn, rettritun.is
Menntamálaráðuneyti:
- 15:00 Tölvuorðasafn – klippt á borða. Tölvuorðsafn á vefnum – ráðherra opnar formlega
Menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4
Hjallaskóli í Kópavogi:
- 16:00 Hátíðardagskrá
Ráðherra afhendir Jónasarverðlaunin
Dagskrá í hátíðarsal Hjallaskóla í Kópavogi, Álfhólsvegi 120