Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-október 2006
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrstu tíu mánuði ársins liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu jókst handbært fé frá rekstri um 48,8 milljarða króna innan ársins, sem er 28,5 milljörðum hagstæðari útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Tekjur reyndust um 28,5 milljörðum hærri en í fyrra, ef undanskildar eru tekjur vegna sölunnar á Landssímanum hf., á meðan gjöldin hækka aðeins um 2,2 milljarða milli ára. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 46,8 milljarða króna, en hann var jákvæður um 68,7 milljarða á sama tíma í fyrra.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar–október
(Í milljónum króna)
|
2002 |
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
Innheimtar tekjur |
190.965 |
211.559 |
228.745 |
336.643 |
308.354 |
Greidd gjöld |
202.110 |
218.708 |
233.304 |
256.585 |
258.824 |
Tekjujöfnuður |
-11.145 |
-7.149 |
-4.558 |
80.058 |
49.531 |
Söluhagn. af hlutabréfum og eignarhlutum |
-3.252 |
-12.013 |
- |
-58.033 |
-384 |
Breyting rekstrartengdra eigna og skulda |
-2.167 |
23 |
1.710 |
-1.731 |
-356 |
Handbært fé frá rekstri |
-16.533 |
-19.139 |
-2.848 |
20.294 |
48.791 |
Fjármunahreyfingar |
9.188 |
20.614 |
9.273 |
48.377 |
-2.006 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
-7.345 |
1.475 |
6.425 |
68.671 |
46.785 |
Afborganir lána |
-28.558 |
-30.654 |
-30.856 |
-61.557 |
-41.565 |
Innanlands |
-10.598 |
-18.204 |
-5.678 |
-14.064 |
-18.692 |
Erlendis |
-17.960 |
-12.450 |
-25.178 |
-47.493 |
-22.873 |
Greiðslur til LSR og LH |
-7.500 |
-6.250 |
-6.250 |
-3.300 |
-3.300 |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-43.403 |
-35.429 |
-30.681 |
3.814 |
1.921 |
Lántökur |
43.465 |
27.439 |
30.408 |
9.048 |
25.961 |
Innanlands |
11.398 |
22.225 |
13.136 |
9.048 |
21.345 |
Erlendis |
32.067 |
5.214 |
17.272 |
- |
4.616 |
Greiðsluafkoma ríkissjóðs |
62 |
-7.989 |
-272 |
12.862 |
27.882 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 308 ma.kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra voru tekjurnar 337 ma.kr. Þessi samdráttur milli ára skýrist að mestu leyti af 57 ma.kr. söluhagnaði af Landssímanum sem var tekjufærður í september 2005. Sé litið fram hjá því jukust tekjur á tímabilinu um 28,5 ma.kr. milli ára eða 10,2%. Aukningin verður 9,0% ef einnig er leiðrétt fyrir tilfærslu á innheimtum tekjuskatti lögaðila um sl. áramót. Þannig leiðrétt jukust skatttekjur og tryggingagjöld um 10,6% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 6,6% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því 3,8%.
Innheimta skatta á tekjur og hagnað nam rúmum 97 ma.kr. og jókst um 16 ma.kr. frá síðasta ári, eða 20%. Tekjuskattur einstaklinga jókst um 13% og lögaðila um 65% (þá er leiðrétt fyrir fyrrgreindri tilfærslu). Innheimtur fjármagnstekjuskattur nam 18 ma.kr. og jókst um 1,4% milli ára, en fjármagnstekjuskattur vegna sölu Landssímans myndaði 5,6 ma.kr. tekjur fyrir ríkissjóð í september í fyrra. Sé litið fram hjá þeim eina lið jókst fjármagnstekjuskattur á tímabilinu um 48% milli ára. Innheimt tryggingagjöld jukust um tæp 17% milli ára, eða tæp 7% umfram hækkun launavísitölu á sama tíma. Innheimta eignarskatta nam 7,6 ma.kr. sem er þriðjungi minna en á sama tímabili í fyrra. Að mestu eru þetta stimpilgjöld eða 6 ma.kr. en innheimta þeirra á árinu hefur dregist saman um 21% frá fyrra ári, meðal annars vegna þess að dregið hefur úr skuldbreytingu lána.
Innheimta almennra veltuskatta nam 147 ma.kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins og jókst um 10,3% að nafnvirði frá fyrra ári eða 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virðisaukaskatti jukust um 11,5% sem jafngildir 4,6% raunaukningu. Vegna lagabreytingar í upphafi ársins sem fól í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fer marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins er til skoðunar. Sé horft á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánaða kemur fram raunvöxtur tekna af sköttum sem lagðir eru á vöru og þjónustu náði hámarki í árslok 2005 en á þessu ári hefur hægt jafnt og þétt á vextinum. Aðrir veltuskattar en virðisaukaskattur nema um þriðjungi af veltusköttum í heild. Þessir skattar hafa dregist saman að raunvirði á síðustu mánuðum, og er þá miðað við hreyfanlegt meðaltal yfir nokkra mánuði.
Tekjur ríkissjóðs janúar–október 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2004 |
2005 |
2006 |
|
2004 |
2005 |
2006 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
212.694 |
256.866 |
287.295 |
|
14,8 |
20,8 |
11,8 |
Skattar á tekjur og hagnað |
63.767 |
81.199 |
97.368 |
|
15,4 |
27,3 |
19,9 |
Tekjuskattur einstaklinga |
50.014 |
55.020 |
62.249 |
|
12,0 |
10,0 |
13,1 |
Tekjuskattur lögaðila |
5.240 |
8.437 |
17.129 |
|
55,8 |
61,0 |
103,0 |
Skattur á fjármagnstekjur |
8.514 |
17.741 |
17.990 |
|
17,5 |
108,4 |
1,4 |
Eignarskattar |
11.305 |
12.114 |
7.627 |
|
57,2 |
7,2 |
-37,0 |
Skattar á vöru og þjónustu |
111.202 |
133.175 |
146.878 |
|
12,1 |
19,8 |
10,3 |
Virðisaukaskattur |
76.016 |
91.389 |
101.916 |
|
13,0 |
20,2 |
11,5 |
Vörugjöld af ökutækjum |
5.095 |
8.605 |
8.883 |
|
37,0 |
68,9 |
3,2 |
Vörugjöld af bensíni |
7.135 |
7.468 |
7.436 |
|
11,7 |
4,7 |
-0,4 |
Skattar á olíu |
4.664 |
3.949 |
5.577 |
|
17,8 |
-15,3 |
41,2 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
8.429 |
8.948 |
9.291 |
|
3,1 |
6,2 |
3,8 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
9.863 |
12.815 |
13.776 |
|
1,9 |
29,9 |
7,5 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
2.499 |
2.775 |
3.357 |
|
18,3 |
11,0 |
21,0 |
Aðrir skattar |
1.252 |
1.385 |
1.504 |
|
. |
10,6 |
8,6 |
Tryggingagjöld |
22.669 |
26.219 |
30.560 |
|
9,3 |
15,7 |
16,6 |
Fjárframlög |
292 |
339 |
1.207 |
|
-67,2 |
16,2 |
255,8 |
Aðrar tekjur |
15.346 |
21.407 |
19.072 |
|
19,2 |
39,5 |
-10,9 |
Sala eigna |
413 |
58.031 |
781 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
228.745 |
336.642 |
308.354 |
|
8,1 |
47,2 |
-8,4 |
Greidd gjöld nema 258,8 milljörðum króna og hækka um 2,2 milljarða frá fyrra ári. Frávik eru meiri á einstökum liðum. Vaxtagreiðslur lækka um 8,2 milljarða, einkum vegna þess að stór flokkur spariskírteina var á innlausn í apríl í fyrra. Þá lækkar greiddur fjármagnstekjuskattur um 6,1 milljarð milli ára vegna sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Landssímanum hf. í fyrra. Að vaxtagreiðslum og fjármagnstekjuskatti undanskildum hækka gjöldin um 16,6 milljarða eða 7,1%. Þar munar mest um 4,9 milljarða hækkun heilbrigðismála og 3,1 milljarð til menntamála. Þá hækka greiðslur til almannatrygginga- og velferðarmála um 2,5 milljarða og til almennrar opinberrar þjónustu um 2,3 milljarða. Greiðslur til löggæslu hækka um 1,5 milljarða, en greiðslur til atvinnumála hækka mun minna, eða um 0,8 milljarða milli ára. Heilbrigðismál og almannatryggingar vega samtals um helming af heildargreiðslum ríkissjóðs.
Gjöld ríkissjóðs janúar–október 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2004 |
2005 |
2006 |
|
2005 |
2006 |
Almenn opinber þjónusta |
38.473 |
52.250 |
40.210 |
|
35,8 |
-23,0 |
Þar af vaxtagreiðslur |
11.854 |
16.825 |
8.592 |
|
41,9 |
-48,9 |
Heilbrigðismál |
61.407 |
65.527 |
70.421 |
|
6,7 |
7,5 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
55.278 |
58.065 |
60.520 |
|
5,0 |
4,2 |
Efnahags- og atvinnumál |
35.541 |
34.243 |
35.034 |
|
-3,7 |
2,3 |
Menntamál |
22.006 |
25.600 |
28.716 |
|
16,3 |
12,2 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
10.476 |
10.227 |
11.568 |
|
-2,4 |
13,1 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
7.277 |
7.443 |
8.904 |
|
2,3 |
19,6 |
Umhverfisvernd |
2.663 |
2.857 |
3.093 |
|
7,3 |
8,2 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
193 |
372 |
358 |
|
92,5 |
-3,6 |
Gjöld alls |
233.314 |
256.585 |
258.824 |
|
10,0 |
0,9 |
Lántökur ársins nema 26 milljörðum króna en afborganir lána eru 41,6 milljarðar. Mismunurinn er fjármagnaður með handbæru fé frá rekstri.
Eiginfjárframlag ríkisins í Nýsköpunarsjóði var aukið um 1 milljarð króna á árinu og 3,3 milljarðar voru greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.