Heimsókn utanríkisráðherra til Litháen
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 087
Í dag átti Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hádegisverðarfund með Petras Vaitiekunas utanríkisráðherra Litháen. Á fundinum ræddu ráðherrarnir meðal annars tvíhliða samskipti landanna, nýliðinn leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, öryggis- og varnarmál og Evrópumál.
Þá heimsótti utanríkisráðherra þinghúsið í Litháen og kynnti sér starfsemi íslenskra fyrirtækja í landinu, auk þess að vígja nýja ræðisskrifstofu Íslands í Vilníus.
Utanríkisráðherra heldur síðdegis til Genfar á ráðherrafund EFTA-ríkjanna.