Sérfræðingur með viðskiptamenntun
Laus er til umsóknar staða sérfræðings hjá sveitarstjórnarskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Verkefni sveitarstjórnarskrifstofunnar eru einkum þau að vinna að stefnumótun í málefnum sveitarfélaga og fjalla um samskipti ríkis og sveitarfélaga og verkaskiptingu þeirra. Skrifstofan fer jafnframt með húsnæðismál. Í því felst stefnumótun bæði varðandi hið almenna húsnæðislánakerfi og félagsleg úrræði á sviði húsnæðismála.
Leitað er eftir einstaklingi með viðskiptamenntun og haldgóða þekkingu á reikningsskilum og ársreikningum sem jafnframt er fær um að sinna fjölbreyttum verkefnum í krefjandi umhverfi. Starfsreynsla á sveitarstjórnarstigi er kostur og áhugi og þekking á málefnum sveitarfélaga er skilyrði. Enn fremur er lögð áhersla á vandvirkni í vinnubrögðum, hæfni í ræðu og riti og almenna færni í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli. Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og reynsla af notkun á Lotus Notes æskileg.
Miðað er við að ráða í stöðuna sem fyrst. Um kjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Ráðning miðast við fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason skrifstofustjóri eða Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri í síma 545 8100, eða í tölvupósti um netföngin [email protected] eða [email protected]
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt upplýsingum um meðmælendur berist félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, eigi síðar en 20. desember 2006. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vakin er athygli á því að starfið stendur opið jafnt konum og körlum.
Reykjavík, 4. desember 2006