Svar um rétt nemenda í framhalds- og háskólanámi til húsaleigubóta
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Jóns Bjarnasonar alþingismanns um rétt nemenda í framhalds- og háskólanámi til húsaleigubóta.
Ráðherra benti á að fyrir lægju tillögur samráðsnefndar um húsaleigubætur um þetta efni meðal annars. Hins vegar stæði út af að samkomulag takist milli ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um fjármögnun og ábyrgð á greiðslu á viðbótarkostnaði.