Styrkir til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra
Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra dýra sem falla undir lög nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 5. janúar 2007 og styrkjum verður úthlutað úr sjóðnum fyrir 1. mars 2007. Ráðuneytið veitir styrkina að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar.
Styrkirnir eru veittir samkvæmt 3. mgr. 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni var breytt með 39. gr. laga nr. 164/2002.