Viðræður Íslendinga og Dana um samstarf á sviði öryggismála
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 094
Íslenskir og danskir embættismenn áttu í dag fund um samstarf þjóðanna um öryggismál o.fl. Farið var yfir atriði er varða sameiginlega hagsmuni á Norður-Atlantshafi og ánægju lýst með þróun samstarfs á undanförnum árum. Áréttaður var vilji beggja aðila til frekara samstarfs og ákveðið að halda annan fund snemma á næsta ári.