Hoppa yfir valmynd
19. desember 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkið kaupir St. Franciskusspítalann í Stykkishólmi

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 39/2006

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, og systir Belén Aldanondo, fulltrúi St. Franciskusreglunnar undirrituðu í dag samkomulag um kaup ríkisins á eignarhluta reglunnar í St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi.

Systir Belén Aldanondo fulltrúi St. Franciskusreglunnar lætur Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra fá lyklana

Tekið við lyklunum

Greiddar verða 140 milljónir fyrir hlut reglunnar og ríkið tekur auk þess að sér að standa undir lífeyrisréttindum starfsmanna sem þeir hafa áunnið sér. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tók við spítalanum til reksturs frá og með áramótum við sama tækifæri.

Breytingar verða ekki á rekstri spítalans eða þjónustunni sem þar hefur verið veitt undanfarið. Þjónustusamningur sem í gildi var um rekstur og þjónustu spítalans milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og stofnunarinnar fellur úr gildi við kaupin.

Á spítalanum eru 40 sjúkrarúm, 17 fyrir almenna sjúklinga, eitt bráðarými, 9 hjúkrunarrými og 13 rúm fyrir háls- og baksjúklinga. Á fyrstu hæð hússins er rekin heilsugæslustöð í tengslum við rekstur spítalans. Húsnæði heilsugæslustöðvarinnar er ekki í eigu St. Franciskusreglunnar.

Sif Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra komin með lyklana

Við undirritun frá vinstri: systir Czeslawa Oles príorinna St. Franciskusreglunnar í Stykkishólmi, Sif Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, systir Belén Aldanondo fulltrúi St. Franciskusreglunnar, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra

St. Franciskusreglan lét upphaflega reisa sjúkrahúsið í Stykkishólmi árið 1934 og var það tekið formlega í notkun 17. september 1936. Fyrir rúmum aldarfjórðungi réðust St. Franciskusreglan, ríkissjóður og hrepparnir sem þá ráku heilsugæslustöðina í að stækka sjúkrahúsið. Með sölu St. Franciskusspítalans lýkur formlegum afskiptum reglunnar af heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þar með er punkturinn settur aftan við 70 ára farsæla heilbrigðisþjónustu systrareglunnar sem kennir sig við heilagan Frans frá Assisí.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu í síma 545 9200.

Reykjavík 19. desember 2006

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta