25 milljónum króna úthlutað úr samkeppnisdeild Verkefnasjóðs sjávarútvegsins
Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti
25 milljónum króna úthlutað úr samkeppnisdeild Verkefnasjóðs sjávarútvegsins
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur, í samræmi við tillögur stjórnar samkeppnisdeildar Verkefnasjóðs sjávarútvegsins, úthlutað 25 milljónum króna úr sjóðnum til sjávarrannsókna á samkeppnissviði.
Alls bárust 33 umsóknir, þar af 25 vegna stærri verkefna og átta vegna minni verkefna. Sótt var um styrki fyrir 117,5 milljónir króna, eða nærri fimmfalt það fé sem deildin hafði til umráða að þessu sinni. Sex stór verkefni og þrjú minni hlutu brautargengi. Þetta er í fyrsta sinn eftir skipulagsbreytingar á Verkefnasjóði sjávarútvegsins sem styrkir eru veittir til sjávarrannsókna á samkeppnissviði. Styrkurinn nemur að hámarki 50% af heildarkostnaði hvers verkefnis. Sjóðurinn stuðlar því nú að nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfsemi fyrir a.m.k. 50 milljónir króna. Ætla má að þessi upphæð verði á endanum töluvert hærri.
Verkefnin taka til átta mismunandi tegunda sjávarlífvera. Aðalumsækjendur sex verkefnanna eru staðsettir utan höfuðborgarsvæðisins og í hinum 3 eru samstarfsaðilar einnig af landsbyggðinni.
Stjórn samkeppnisdeildar Verkefnasjóðs sjávarútvegsins skipa; Dr. Jakob K. Kristjánsson sem er formaður stjórnar, Rannveig Björnsdóttir lektor við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri og deildarstjóri fiskeldisdeildar Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og Kristján G. Jóakimsson vinnslu- og markaðsstjóri hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf.
Jakob K. Kristjánsson og Einar K. Guðfinnsson.
Meðfylgjandi er listi yfir þau verkefni sem fengu styrk. Frekari upplýsingar má finna í Djúpinu, vefriti sjávarútvegsráðuneytisins.
Heiti verkefnis |
Verkefnisstj. |
Umsækjandi |
Styrkur |
Töskukrabbi (Cancer pagurus) – ný tegund
|
Jörundur Svavarsson |
Líffræðistofnun H.Í. |
3.000.000 |
Stofnerfðafræði leturhumars á Íslandsmiðum
|
Guðmundur H. Gunnarsson |
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins |
4.000.000 |
Útbreiðsla og þéttleiki beitukóngs í Breiðafirði og Faxaflóa. Leit nýrra veiðisvæða
|
Erla Björk Örnólfsdóttir |
Vör - Sjávar-rannsóknasetur við Breiðafjörð |
4.000.000 |
Kortlagning líffræðilegs fjölbreytileika þorsks með áherslu á atferli í tengslum við æxlun og far
|
Guðrún Marteinsdóttir |
Líffræðistofnun H.Í. |
4.000.000
|
Át hrefnu metið með aðskotaefnum
|
Guðjón Atli Auðunsson |
Iðntæknistofnun |
3.500.000 |
Sæbjúgu. Áframhaldandi markaðsrannsókn/markaðsfærsla og fjölgun veiðisvæða
|
Kári P. Ólafsson |
Reykofninn Grundarfirði |
3.500.000 |
Möguleikar á framleiðslu náttúrulegs dýrasvifs til notkunar á fyrstu stigum fiskeldis
|
Jónína Þ. Jóhannsdóttir |
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins |
1.000.000 |
Öflun upplýsinga um göngur, dreifingu, líffræði og nýtingarmöguleika makríls (Scomber scombrus) á Íslandsmiðum
|
Guðmundur H. Gunnarsson |
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins |
1.000.000 |
Gerð myndefnis um lífríki sjávar og veiðar á nytjastofnum |
Erlendur Bogason |
Erlendur Bogason |
1.000.000
|
Sjávarútvegsráðuneytinu 27. desember 2006