Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2007

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2007.

Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla árið 2007. Sjóðurinn er í vörslu menntamálaráðuneytis og sér þriggja manna stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara geta sótt um framlög úr sjóðnum, t.d. skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar, kennaramenntunarstofnanir, félög og fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að námskeiðum verði að fullu lokið eigi síðar en við lok skólaársins 2007-2008. Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrkveiting niður en hægt er að sækja um að nýju við næstu úthlutun.

Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna að byggt sé á:

  • að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans
  • skólastefnu og aðalnámskrá
  • fagmennsku og gæðum.

Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem njóta endurmenntunarinnar.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
Rafræn umsóknareyðublöð og nauðsynlegar upplýsingar eru aðgengilegar undir flokknum sjóðir og eyðublöð á vef menntamálaráðuneytis: menntamalaraduneyti.is

Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sundurliðaða kostnaðaráætlun.

Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig greiðslum verður háttað.

Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta