Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2007
Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla
Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2007, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.
Prófdagar verða sem hér segir:
Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 18. október 2007 kl. 9.30 – 12.00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 19. október 2007 kl. 9.30 – 12.00
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.