Formennska Finnlands í Norrænu ráðherranefndinni 2007
Finnar tóku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 1. janúar sl. Í formennskuáætlun þeirra er m.a. lögð áhersla á að styrkja Norðurlönd sem svæði í alþjóðlegri samkeppni með því að efla norrænan heimamarkað og ryðja úr vegi óþarfa stjórnsýsluhindrunum. Nánar má lesa um málið í frétt á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar.
Reykjavík 15. janúar 2007