Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands.

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.
Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2007 - 31. maí 2008 skulu berast sjóðsstjórninni Hanaholmen - kulturcentrum för Sverige og Finland, FI-021000 Esbo, Finland, í síðasta lagi 28. febrúar 2007. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk.

Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er unnt að nálgast eyðublöðin á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta