Heimsókn Geirs H. Haarde til Bergen
Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur í dag erindi um samskipti Íslands og Noregs í Norska verslunarháskólanum í Bergen. Ráðherrann mun einnig sitja hátíðarkvöldverð í boði ræðismanna Íslands í Bergen ásamt framámönnum í viðskipta- og menningarlífi Bergen.