Samstarf menntamálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis um menningarmál
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um samstarf ráðuneytanna á sviði menningarmála. Samkomulagið felur í sér að samstarf ráðuneytanna á þessu sviði skuli styrkt. Jafnframt skal mörkuð stefna sem meðal annars taki mið af því að efla áhuga erlendis á íslenskri list og menningu, auka möguleika og áhrif íslenskra listamanna á alþjóðlegum vettvangi, bæta menningarímynd Íslands og auka gagnkvæm menningarsamskipti við önnur lönd og menningarsvæði.
Ráðuneytin munu á yfirstandandi ári hvort um sig leggja fé af mörkum til þessa. Stefnt er að því að auka fjárframlögin í áföngum á næstu árum.