Nýtum tímann - Notum tæknina Dagskrá UT-ráðstefnunnar 2007
Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneyti fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tímann – Notum tæknina í Salnum, Kópavogi, 8. mars nk. kl. 13:00-16:30. Kynnt verða nokkur af stærstu verkefnum ríkis og sveitarfélaga í rafrænni stjórnsýslu.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir en tilkynna þarf skráningu á netfangið [email protected] eða í síma 511 1230 fyrir hádegi 5. mars.
Ráðstefnugjald er kr. 7.900.
Dagskrá í Salnum í Kópavogi 8. mars 2007
12:45 Skráning og afhending ráðstefnugagna
13:10 Ávarp: Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra
13:30 Þegar þér hentar...Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu, forsætisráðuneyti
13:50 Ísland.is vísar þér veginn
Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneyti
Fjóla Agnarsdóttir, verkefnisstjóri Ísland.is, forsætisráðuneyti
14:10 Rafræn stjórnsýsla í Reykjanesbæ
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæ
14:25 Borgin í einum smelli – sjálfsafgreiðsla á vef Reykjavíkurborgar
Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar
14:40 Kaffiveitingar
15:00 Alla leið: Lykill að rafrænu Íslandi
Haraldur Sverrisson skrifstofustjóri, fjármálaráðuneyti
Sæmundur Sæmundsson, stjórnarformaður Auðkennis
15:20 Rafræn skilríki í hnotskurn – hagnýt dæmi um notkun
Haraldur Bjarnason sérfræðingur, fjármálaráðuneyti
15:50 Innkaup án inngripa - rafrænir reikningar og stefna ríkisins í rafrænum innkaupum
Stefán Jón Friðriksson sérfræðingur, fjármálaráðuneyti
Bergþór Skúlason tölvunarfræðingur, Fjársýslu ríkisins
16:10 Umræður og lokaorð
16:30 Ráðstefnuslit
17:00 Tækni og vit 2007
Ráðstefnugestum er boðið á formlega opnun sýningarinnar Tækni og vit 2007 í Fífunni, Kópavogi.