Afhendingar trúnaðarbréfa
Sendiherra Sambíu, fr. Joyce Mwaka Chembe Musenge, sendiherra Pakistan, hr. Rab Nawaz Khan, sendiherra Portúgals, hr. Joao de Lima Pimentel, og sendiherra Katar, hr. Khalid Rashid Al-Hamoudi Al-Mansouri, afhenda forseta Íslands trúnaðarbréf sín í dag sem sendiherrar þjóða sinna gagnvart Íslandi.
Sendiherra Sambíu er með aðsetur í Stokkhólmi, sendiherrar Pakistan og Portúgals eru með aðsetur í Osló, en sendiherra Katar er með aðsetur í London.