Áætluð almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla 2007
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur gert tillögu að áætlun um úthlutun almennra jöfnunarframlaga til sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla á árinu 2007, sbr. 3. gr. rgl. nr. 351/2002.
Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu nefndarinnar.
Áætlað er að heildarfjárhæð almennra jöfnunarframlaga á árinu nemi 3.893 milljónum króna. Niðurstöðuna gagnvart einstökum sveitarfélögum er að finna í meðfylgjandi yfirliti.
Yfirlit yfir áætlun almennra jöfnunarframlaga 2007