Embætti listdansstjóra laust til umsóknar
Embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins er laust til umsóknar. Hlutverk Íslenska dansflokksins er að sýna listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og vera að öðru leyti vettvangur til eflingar og framþróunar danslistar á Íslandi.
Listdansstjóri er forstöðumaður Íslenska dansflokksins. Listdansstjóri veitir dansflokknum listræna forystu og mótar listræna stefnu hans í samráði við stjórn. Listdansstjóri ber jafnframt ábyrgð á daglegum rekstri dansflokksins og reikniskilum sbr. nánar reglur um starfsemi dansflokksins 14/2002.
Umsækjendur um embættið skulu hafa staðgóða þekkingu og reynslu á sviði listdans.
Menntamálaráðherra skipar listdansstjóra til fimm ára í senn að fenginni tillögu stjórnar, sbr. 1. mgr. 3. gr. reglna um starfsemi Íslenska dansflokksins, nr. 14/2002 og lög um réttindi og skyldur starfmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Gert er ráð fyrir því að skipað eða sett verði í embættið frá og með 1. ágúst 2007.
Um laun listdansstjóra fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 30. mars 2007.