Skýrsla starfshóps um mótun íþróttastefnu
Kynningarfundur um niðurstöður starfshóps um málefni íþrótta á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 13. mars nk. kl. 16:00 í fundarsal Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, skipaði í byrjun ársins 2005 starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu. Í febrúar 2006 lagði starfshópurinn fram áfangaskýrslu undir heitinu „Íþróttavæðum Ísland“. Skýrsluna er að finna á vef menntamálaráðuneytisins á slóðinni, /nyrit/nr/3481
Fundurinn er öllum opinn og tekið verður á móti ábendingum sem tekið verður mið af þegar íþróttastefnan verður endanlega mótuð.