Hoppa yfir valmynd
16. mars 2007 Dómsmálaráðuneytið

Athugasemd í tilefni af umfjöllun fréttastofu Sjónvarps og Kastljóss 13. mars sl. um svokallaða 24 ára reglu í útlendingalögum

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið sendi fréttastjóra Sjónvarps og umsjónarmanni Kastljóss hinn 16. mars eftirfarandi:

Dómsmálaráðuneytið vill að gefnu tilefni taka fram: Þegar rætt var í fréttatíma Sjónvarps og Kastljósi 13. mars um hina svokölluðu 24 ára reglu í útlendingalögum var hallað réttu máli. Látið var að því liggja að 24 ára reglan hefði fallið úr gildi strax um sumarið 2005, eftir að gerð var dómssátt um að fella úr gildi tvær ákvarðanir sem byggðu á henni. Hið rétta er að síðan hefur reglan verið framkvæmd á grundvelli ábendinga umboðsmanns Alþingis og hinna ströngu krafna sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið viðurkenndi, með endurupptöku málanna tveggja sem komu við sögu í fréttatímanum og Kastljósinu. Umboðsmaður Alþingis fann ekki að því að 24 ára reglunni væri beitt en taldi að ráðuneytið hefði jafnframt átt að líta til fleiri ákvæða í útlendingalögum við ákvörðun sína. Engar deilur hafa sprottið af beitingu 24 ára reglunnar síðastliðin tvö ár.

Dómsmálaráðuneytið telur athugasemd Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns í Kastljósi um „...að hafi málinu lokið með þessum hætti sé það viðurkenning ríkisvaldsins á því að þetta ákvæði standist hvorki stjórnarskrá né aðrar skuldbindingar ríkisins“, ekki eiga sér stoð í þeim málum, sem rætt var um í Kastljósi. Með vísan til góðra stjórnsýsluhátta ákvað ráðuneytið að eigin frumkvæði að taka fullt tillit til athugasemda umboðsmanns Alþingis og endurupptaka málin, ekkert hefur komið fram sem segir að 24 ára reglan standist ekki stjórnarskrá.

Reykjavík 16. mars 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta