Hoppa yfir valmynd
20. mars 2007 Dómsmálaráðuneytið

Nýtt viðbótarhúsnæði Lögregluskólans tekið í notkun

Björn Bjarnason og Arnar Guðmundsson
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Arnar Guðmundsson skólastjóri Lögregluskóla ríkisins.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra opnaði föstudaginn 16. mars nýtt viðbótarhúsnæði Lögregluskóla ríkisins við Krókháls 5b. Við sama tækifæri var ritað undir árangursstjórnunarsamning um starfsemi skólans auk þess sem staðfest var skipurit og erindisbréf skólastjóra, Arnars Guðmundssonar.

Með þessari nýju viðbót stækkar húsnæði lögregluskólans um tæplega 400 fm og segir Arnar Guðmundsson skólastjóri að þetta gjörbreyti allri aðstöðu hans. „Mestu munar um nýtt þjálfunar- og Haraldur Johannessen, Páll E. Winkel og Stefán Eiríkssonæfingarými en að auki bætast við kennslurými sem nýtast við margþætt verkefni nemenda. Þá var búningsaðstaða kvenna við skólann einnig stækkuð og bar brýna nauðsyn til þess þar sem konum hefur fjölgað til muna í nemendahópnum á síðustu árum.“

Nú stunda 48 nemendur nám á fyrstu önn grunnnámsdeildar skólans. Námið á þessari önn tekur fjóra mánuði og fara nemendur svo í átta mánaða starfsþjálfun. Að starfsþjálfun lokinni hefst svo þriðja og síðasta önnin sem lýkur með útskrift í lok apríl 2008. Meðalaldur nýnema í ár er 26 ár. Lögregluskólinn hefur nú auglýst eftir nýjum hópi umsækjenda sem mun hefja nám í september næstkomandi og ljúka því í desember 2008.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum