Fundur forsætisráðherra með William Hague
Forsætisráðherra, Geir H. Haarde, átti í gær kvöldverðarfund með William Hague, fyrrverandi formanni breska Íhaldsflokksins og núverandi talsmanni flokksins í utanríkismálum, og Ashcroft lávarði, varaformanni flokksins og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.