Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Setning í embætti forstjóra Lánasýslu ríkisins

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 3/2007.

Forstjóri Lánasýslu ríkisins, Þórður Jónasson, hefur óskað eftir lausn frá embætti og hefur jafnframt óskað eftir því að lausnin verði veitt hið fyrsta. Hefur fjármálaráðherra fallist á að starfslok Þórðar verði hinn 10. apríl næstkomandi. Fjármálaráðherra hefur í dag sett Sigurð G. Thoroddsen, lögfræðing hjá Lánasýslu ríkisins, til þess að gegna starfi forstjóra Lánasýslu ríkisins á tímabilinu 11. apríl til 1. ágúst 2007.

Reykjavík, 2. apríl 2007

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum