Hoppa yfir valmynd
3. maí 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirritun kaupsamnings um 15,2% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf.

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 6/2007

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy ehf., munu í dag undirrita samning um kaup félagsins á 15,203% eignarhlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja.

Fer undirritun fram kl. 17:30 í Þjóðmenningarhúsinu (Hringborðssal á 2. hæð). Er fjölmiðlum, sem þess óska, velkomið að vera viðstaddir athöfnina.

Reykjavík, 3. maí 2007
Fjármálaráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum