Hoppa yfir valmynd
18. maí 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Leyfi til að ráða leiðbeinanda - sent skólastjórum


Til skólastjóra grunnskóla

Reykjavík, 10. maí 2007


Undanþágunefnd grunnskóla er skipuð samkvæmt lögum nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
Í nefndinni eiga sæti Sigríður Lára Ásbergsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, formaður, Rósa Ingvarsdóttir, kennari, fulltrúi Kennarasambands Íslands og Guðmundur B. Kristmundsson, fulltrúi Kennaraháskóla Íslands. Áheyrnarfulltrúi er Kristinn Kristjánsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður og jafnframt varaformaður er Erla Ósk Guðjónsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í menntamálaráðuneytinu, netfang: [email protected]

Meðfylgjandi sendist yður umsóknareyðublað um heimild til að ráða leiðbeinanda.

Nefndin vill ennfremur benda yður á að hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar er lúta að starfi undanþágunefndar grunnskóla á heimasíðu menntamálaráðuneytisins menntamalaraduneyti.is

Vakin er sérstök athygli á að til að afgreiðsla umsókna gangi fljótt og vel er nauðsynlegt að þar til gerð eyðublöð séu vandlega útfyllt og að þær upplýsingar og þau fylgigögn sem beðið er um fylgi með umsókn.

Að gefnu tilefni er sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi:
a. að undanþágunefnd tekur til afgreiðslu eingöngu umsóknir er varða kennslustörf ekki stuðningsstörf.         

b.      að skv. lögverndunarlögum á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara   og skólastjóra nr. 86/1998 ber að auglýsa öll laus kennslu- og stjórnunarstörf

c.      að afrit af auglýsingum þurfa að fylgja umsókn, þar sem m.a. eru tilgreindar aðalkennslugreinar og aldursstig nemenda

d.      að fáist heimild frá undanþágunefnd til að lausráða starfsmann gildir sú heimild aldrei lengur en til eins  árs í senn

e.      að ekki má endurráða slíkan starfsmann án undangenginnar auglýsingar.

Sérstaklega er vakin athygli á því að tilgreina ber í umsókn hvort um sund- og/eða íþróttakennslu er að ræða.
Ófullnægjandi umsókn, sbr. 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 751/1998 um undanþágunefnd grunnskóla verður ekki tekin til afgreiðslu.

Með ósk um ánægjulegt samstarf,

f.h. undanþágunefndar grunnskóla


Sigríður Lára Ásbergsdóttir, formaður

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta