Heimsókn ráðherra til Bændasamtaka Íslands
Fyrst átti hann fund með Haraldi Benediktssyni formanni samtakanna og Sigurgeiri Þorgeirssyni, framkvæmdastjóra en að því loknu var boðið til starfsmannafundar með ráðherra. Að loknu spjalli við starfsfólk kynnti landbúnaðarráðherra sér starfsemi hvers sviðs innan Bændasamtakanna.
Á myndinni gluggar Einar í nýjasta eintak Bændablaðsins. Með honum á myndinni eru Haraldur, Björn Friðrik aðstoðarmaður ráðherra og Sigurgeir.