Hoppa yfir valmynd
31. maí 2007 Innviðaráðuneytið

Óskað eftir viðbrögðum vegna endurskoðunar ferðamálaáætlunar

Nú stendur yfir endurskoðun á ferðamálaáætlun 2006-2015 og hefur verið ákveðið að óska eftir viðbrögðum við afmörkuðum þáttum verkefnisins eftir því sem því vindur fram.

Stýrihópurinn telur að í endurskoðaðri áætlun skulu vera sömu meginmarkmið og í fyrirliggjandi áætlun. Þau eru:

Náttúra Íslands, menning þjóðarinnar og fagmennska verði ráðandi þættir í þróun íslenskra ferðamála.

Tryggð verði samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar sem stuðli að hámarksafrakstri í greininni.

Álag vegna ferðaþjónustu verði jafnað á landið og íbúa þess og verði innan þolmarka í samræmi við niðurstöður rannsókna.

Ímynd Íslands sem ferðamannastaðar verði byggð upp og varin.

Í ferðamálaáætlun 2006-2015 voru eftirtaldir níu flokkar sem lutu að megin markmiðum áætlunarinnar:

Rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar

Kynningarmál

Nýsköpun og þróun

Menntun

Rannsóknir

Grunngerð

Fjölþjóðasamstarf

Gæða- og öryggismál

Umhverfismál

Hér með er óskað eftir ábendingum og athugasemdum varðandi markmiðin, svo sem hvort þörf þyki á að breyta þeim og hvort breyta skuli ofangreindum málaflokkum, hvort þörf sé á nýjum eða hvort skuli sameina þá og/eða fækka þeim. Tekið er á móti ábendingum varðandi þetta til sunnudagsins 10. júní. Allar ábendingar eru vel þegnar og munu verða teknar til umfjöllunar og skoðunar hjá stýrihópnum.

Sami stýrihópur og vann áætlunina upphaflega vinnur að endurskoðuninni: Magnús Oddsson ferðamálastjóri er formaður hópsins, Helga Haraldsdóttir, skrifstofustjóri ferðamála, og Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF. Sunna Þórðardóttir er starfsmaður verkefnisins.

Ábendingar sendist til: [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum