Róbert Marshall verður aðstoðarmaður samgönguráðherra
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hefur ráðið Róbert Marshall sem aðstoðarmann sinn í samgönguráðuneytinu. Róbert hefur störf í fyrramálið.
Róbert hefur starfað sem blaða- og fréttamaður um árabil. Hann er fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrverandi forstöðumaður fréttasviðs 365 ljósvakamiðla. Róbert er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Kristján gekk frá ráðningu Róberts á Hellisheiðinni í gær á leið til Selfoss. Ákvörðunin var svo tilkynnt á félagsfundi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem þeir sóttu báðir í gærkvöldi.