Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 65/2007
Nicholas Burns, aðstoðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur í heimsókn til Íslands í kvöld í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra. Auk fundar ráðherranna tveggja mun Geir H. Haarde, forsætisráðherra, bjóða til vinnuhádegisverðar á morgun, fimmtudaginn 14. júní nk. Heimsókninni lýkur með blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum kl. 13:30, í kjölfar vinnuhádegisverðarins.