Hoppa yfir valmynd
25. júní 2007 Matvælaráðuneytið

12. Fundur sjávarútvegsráðherra við Norður - Atlantshafið

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

12. fundur sjávarútvegsráðherra við Norður-Atlantshafið

Í gær lauk árlegum fundi  sjávarútvegsráðherra Norður-Atlantshafsins sem haldinn var á Grænlandi. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra tók þátt í fundinum og auk Íslendinga og Grænlendinga sóttu Færeyingar, Norðmenn, Kanadamenn, Rússar og fulltrúar Evrópusambandsins fundinn. 

 

Aðalefni hans var aðgerðir gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum. Á fundinum lýstu ráðherrarnir sérstakri ánægju með þann árangur sem náðst hefur í baráttunni gegn ólöglegum fiskveiðum í Norður-Atlantshafi síðustu misseri. Það sem af er árinu hefur t.a.m. ekki orðið vart við veiðar sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg en vertíðinni þar lýkur innan skamms. Veiðar þessara skipa hafa verið viðvarandi vandamál undanfarin ár. Áætlað hefur verið að þau hafi veitt a.m.k. 20.000 tonn af úthafskarfa á Reykjaneshrygg á síðasta ári.

 

Aðgerðir sem gripið hefur verið til á vettvangi svæðabundinna fiskveiðistjórnunarstofnana, NEAFC (Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndin) og NAFO (Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunin), hafa þannig skilað umtalsverðum árangri. Fela þær m.a. í sér að banna skipum sem stundað hafa ólöglegar veiðar að koma til hafnar aðildarríkjanna auk þess sem eftirlit með löndunum hefur verið hert. Staðfest er að sex af þeim skipum sem stunduðu ólöglegar veiðar á Reykjaneshrygg á síðasta ári verða rifin í brotajárn. Níu önnur veiði- og flutningaskip sem hafa átt hlut að máli hafa verið kyrrsett í höfnum aðildarríkja NEAFC.

 

Sjávarútvegsráðherra Íslands lagði ríka áherslu á að til að sporna enn frekar við ólöglegum veiðum og viðskiptum með ólöglegan afla, vinni ríkin sérstaklega að því að skip þeirra fari í einu og öllu eftir settum reglum um veiðar og tilkynningar um afla. Var þetta áréttað með tilliti til veiða í úthafinu sem lúta stjórn svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana líkt og NEAFC og voru ráðherrarnir sammála um mikilvægi þessa.

 

Jafnframt voru ráðherrarnir sammála um að mikilsvert væri að skoða hvernig hægt sé að sporna við viðskiptum með afla af ólöglegum uppruna. Í því sambandi sé gagnlegt að skoða ferli viðskiptanna, hvort sem lýtur að veiðunum sjálfum, verslun með aflann eða fjármögnun þessarar ólöglegu starfsemi.

 

Sjávarútvegsráðherra Íslands lagði sérstaka áherslu á að á vettvangi Fiskimálanefndar FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S.Þ.) verði metin og þróuð viðmið til að leggja dóm á hvernig ríki framfylgja skyldum sínum gagnvart skipum sem sigla undir fána þeirra. Uppfylli fánaríki ekki þessi viðmið verði hugsanlega heimilt að grípa til aðgerða gegn viðkomandi skipum á úthafinu. Fundurinn samþykkti að ríkin beiti sér fyrir að þessi vinna hefjist og bauðst Kanada til að halda slíka ráðstefnu.

 

Einnig lýsti fundurinn ánægju með þá vinnu sem fyrirhuguð er á vettvangi FAO og lýtur að samræmdum alþjóðlegum hafnríkisreglum, sem miða m.a. að því að koma í veg fyrir löndun afla af ólöglegum uppruna.

 

Ályktun fundarins á ensku má sjá hér.

EKG á NAFMC fundi í Grænlandi júní 2007

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Finn Karlsen sjávarútvegsráðherra Grænlands og Björn Kalsö sjávarútvegsráðherra Færeyja.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 24. júní 2007

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum