Hoppa yfir valmynd
27. júní 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hrannar Björn ráðinn aðstoðarmaður félagsmálaráðherra

Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra
Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra

Hrannar Björn Arnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og mun hann hefja störf 1. júlí næstkomandi.

Hrannar Björn er 39 ára, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, með diplóma í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og stundar MBA-nám við Háskóla Íslands.

Hrannar hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í stjórnmálum og á vettvangi félagsmála. Hann var borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, forseti Skáksambands Íslands og hefur auk starfa við eigin rekstur unnið sem markaðsstjóri Eddu útgáfu og verið forstöðumaður sölu hjá 365 hf. og Mömmu ehf.

Hrannar Björn er kvæntur Heiðu Björgu Hilmisdóttur næringarrekstrarfræðingi, forstöðumanni á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, og eiga þau þrjú börn, 1, 9 og 15 ára.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum