Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2007 Dómsmálaráðuneytið

Lagasafn 2007 kemur út í haust

Unnið er að útgáfu nýs lagasafns sem ráðgert er að komi út í haust. Gengið hefur verið frá samningi milli dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Gutenbergs um prentun safnsins en Ríkiskaup önnuðust útboð á verkinu og verða söluaðili þess, sem fyrr.
Ritstjórn lagasafnsins skipa þau Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri dóms- og kirkjumálaráðuneyti, formaður, Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, og Viðar Már Matthíasson prófessor, sem er ritstjóri safnsins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum