Hoppa yfir valmynd
25. júlí 2007 Matvælaráðuneytið

Skipun ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu

Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, hefur í dag skipað Jónínu S. Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu frá 1. ágúst 2007.

Jónína útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1996 og lauk mastersgráðu frá London School of Economics and Political Science árið 2000. Hún hóf störf í viðskiptaráðuneytinu haustið 2000 og var skipuð skrifstofustjóri þar árið 2004.

Jónína er 36 ára, gift Birgi Guðmundssyni, viðskiptastjóra hjá Landsbankanum í London og eiga þau eitt barn.

Reykjavík, 25. júlí 2007

Viðskiptaráðherra og Jónína S. Lárusdóttir

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum