Hoppa yfir valmynd
1. ágúst 2007 Matvælaráðuneytið

Fyrsti starfsdagur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Iðnaðarráðuneyti, fréttatilkynning nr. 4/2007

Dagskrá í Edinborgarhúsi á Ísafirði markar upphafið á starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur til starfa í dag, 1. ágúst 2007, við samruna Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Þess er vænst að sameinuð starfsemi verði lyftistöng á sviði nýsköpunar og tækni. Það er táknrænt fyrir áherslur Nýsköpunarmiðstöðvar á atvinnuþróun að fyrsti starfsdagur hennar er á Ísafirði. Þar verður tilkynnt um nýja starfsemi IMPRU tengda þekkingarsetrinu sem er í þróun á staðnum.

Í samstarfi við heimamenn verður auðkenni Nýsköpunarmiðstöðvar afhjúpað í Edenborgarhúsinu á Ísafirði kl. 13:00 í dag. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ávarpar gesti en síðan heldur Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, erindi um starfsemina á næstunni. Einnig munu aðrir starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar fjalla um verkefni og árangur þeirra. Þar á meðal eru nokkrar athyglisverðar nýjungar sem ekki hefur verið greint frá áður.

Veruleg samlegðaráhrif verða við sameiningu þessara tveggja stofnana á sviði rannsókna og tækni og einnig þjónustu við sprotafyrirtæki og frumkvöðla. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur nú möguleika á að samtvinna rannsóknar- og þróunarstarf við starfsemi á sviði viðskipta í ríkari mæli en verið hefur hér á landi.

Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands samkvæmt lögum, sem samþykkt voru á Alþingi síðastliðið vor, er að styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs og auka lífsgæði. Í því felst meðal annars að miðla þekkingu og veita stuðningsþjónustu fyrir frumkvöðla og sprota- og nýsköpunarfyrirtæki og að stunda tæknirannsóknir, þróun, greiningar, prófanir, mælingar og vottanir.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands er einnig ætlað að annast stjórnsýsluverkefni sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra og taka mið af
stefnu Vísinda- og tækniráðs í starfsemi sinni á hverjum tíma.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands byggir á forsögu tveggja stofnana og nýjum hugmyndum um hlutverk nýsköpunar í samfélaginu. Stofnar miðstöðvarinnar eru þrír - allar hafa skipt sköpum í þróun íslensks tæknisamfélags:

  • Á Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur verið unnið mikilvægt brautryðjandastarf á sviði byggingartækni undanfarin ár.
  • Á Iðntæknistofnun hefur verið unnið öflugt starf á sviði rannsókna og þróunar svo sem á sviðum líftækni, örtækni, matvæla og efnistækni.
  • Á sviði nýsköpunar fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki hefur starfsemi IMPRU skilað miklum árangri.

Starfsemin mun í náinni framtíð felast í rekstri Nýsköpunar- og sprotamiðstöðvar ásamt því að sinna verkefnum Íslenskra Tæknirannsókna. Starfsmenn verða um 80 talsins, en að auki er gert ráð fyrir hundruð nemenda í ýmiss konar námi sem tengjast munu hinum ýmsu verkefnum. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er að hluta til fjármögnuð af ríkissjóði en innlendir og erlendir rannsóknarstyrkir og útseld verkefni standa undir meirihihluta af tekjum hennar.

Það er áskorun til stjórnenda Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að taka við og efla framangreinda starfsemi þannig að samkeppnishæfni fyrirtækja og atvinnugreina eflist til muna. Ljóst er að Nýsköpunarmiðstöðin hefur afar mikilvægu hlutverki að gegna og til að vinna að þeim metnaðarfullu markmiðum sem uppi eru verður m.a. mótað öflugt og virkt samstarfsnet við háskóla, aðrar stofnanir og við helstu hagsmunasamtök hér á landi.


Frekari upplýsinga er hægt að afla hjá eftirfarandi aðilum:

Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri, sími 8965692
Sigríður Ingvarsdóttir, aðstoðarmaður forstjóra, sími 8246631
Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri Mannauðs- og þróunarsviðs, sími 8940422

Reykjavík, 1. ágúst 2007.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum