Hoppa yfir valmynd
2. ágúst 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skipun í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu

Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað Kristínu Ástgeirsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Skipun þessi er til fimm ára frá og með 1. september nk.

Kristín hefur mjög fjölþætta reynslu á sviði jafnréttismála enda hefur hún starfað víða á þeim vettvangi. Hún er sagnfræðingur að mennt og fjallaði meðal annars meistararitgerð hennar um Ingibjörgu H. Bjarnason og íslenska kvennahreyfingu 1915–1930. Hún hefur gegnt starfi forstöðumanns Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands frá árinu 2005 og verið stundakennari í kynjafræðum við sama skóla frá árinu 2003. Enn fremur starfaði Kristín að málefnum kvenna á vegum utanríkisráðuneytisins og UNIFEM í Kosovo á árunum 2000–2001. Þá var Kristín alþingismaður á árunum 1991–1999.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta