Breyting á reglugerð um flutningaflug
Í undirbúningi er breyting á reglugerð um flutningaflug nr. 193/2006. Þeir sem óska eftir að senda inn umsögn vegna breytingarinnar geta sent tölvupóst á netfang samgönguráðuneytisins.
Um er að ræða innleiðingu á 12. breytingu Flugöryggissamtaka Evrópu á JAR-OPS 1 um flugrekstur með flugvélum; þ.e. breytingum:
NPA FCL/OPS 1 2FTT,
NPA OPS 1 39A,
NPA OPS 1 42,
NPA OPS 1 44,
NPA OPS 1 46 og NPA OPS 1 55.
Þeir sem óska eftir að veita umsögn um breytingarnar geta sent erindi sín á tölvunetfangið [email protected] fyrir 13. ágúst næstkomandi.
Reglugerðardrögin má sjá í heild sinni hér.