Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júní 2007
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrri árshelming 2007 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er breyting á handbæru fé frá rekstri jákvæð um 28,7 ma.kr. innan ársins, sem er 1 ma.kr. lakari útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Tekjur í heild reyndust um 35 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan gjöldin hækka um 22 ma.kr. Hreinn lánsfjárjöfnuður er neikvæður um 39,7 ma.kr. sem er 67,2 ma.kr. lakara en á sama tíma í fyrra. Viðsnúningurinn skýrist að mestu leyti af 30,3 ma.kr. kaupum ríkissjóðs á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og eiginfjáraukningu Seðlabanka Íslands með 44 ma.kr. eiginfjárframlagi ríkissjóðs í byrjun maí.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar – júní 2007
(Í milljónum króna)
|
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
Innheimtar tekjur |
130.556 |
133.583 |
165.540 |
182.826 |
217.913 |
Greidd gjöld |
127.670 |
138.399 |
151.887 |
153.160 |
175.509 |
Tekjujöfnuður |
2.886 |
-4.816 |
13.653 |
29.666 |
42.404 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
-12.059 |
- |
- |
- |
-6136 |
Breyting rekstrartengdra eigna og skulda |
114 |
2.574 |
1.883 |
40 |
-7.578 |
Handbært fé frá rekstri |
-9.059 |
-2.243 |
15.536 |
29.706 |
28.690 |
Fjármunahreyfingar |
17.596 |
4.251 |
10.379 |
-2.208 |
-68.369 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
8.424 |
-858 |
25.915 |
27.498 |
-39.679 |
Afborganir lána |
-17.952 |
-28.604 |
-30.002 |
-38.873 |
-35.556 |
Innanlands |
-5.545 |
-3.601 |
-13.775 |
-24.100 |
-21.357 |
Erlendis |
-12.408 |
-25.004 |
-16.227 |
-14.773 |
-14.199 |
Greiðslur til LSR og LH |
-3.750 |
-3.750 |
-1.900 |
-1.980 |
-1.980 |
Lánsfjárjöfnuður Brúttó |
-13.279 |
-33.212 |
-5.988 |
-13.355 |
-77.215 |
Lántökur |
14.038 |
34.780 |
9.579 |
16.246 |
49.745 |
Innanlands |
12.661 |
11.228 |
5.305 |
8.146 |
46.411 |
Erlendis |
1.377 |
23.552 |
4.274 |
8.100 |
3.334 |
Greiðsluafkoma ríkissjóðs |
760 |
9.828 |
3.591 |
2.890 |
-27.470 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 218 ma.kr. á fyrri helmingi þessa árs. Það er 29 ma.kr meira en á sama tíma í fyrra, eða 15,8% aukning sé óreglulegum tekjum sleppt. Ef tekið er tillit til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila nemur aukningin 21,3%. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um tæplega 14% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 5,7% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því rúm 8%. Aukning annarra rekstrartekna um 44% milli ára skýrist af arðgreiðslum sem greiddar voru vegna Landsímans í fyrra en ekki á þessu tímabili.
Skattar á tekjur og hagnað námu 77,2 ma.kr. og jukust um 12 ma.kr. frá síðasta ári, eða 18,8%. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um 15,2%, tekjuskattur lögaðila hækkaði um 30% (þá er leiðrétt fyrir fyrrgreindri tilfærslu) og fjármagnstekjuskattur hækkaði um 49%. Innheimt tryggingagjöld jukust um 10% milli ára, og héldust í hendur við hækkun launavísitölu á sama tíma. Innheimta eignarskatta nam 5,5 ma.kr. sem er sama upphæð og í fyrra. Þar af námu stimpilgjöld 4,3 ma.kr. en innheimta þeirra á árinu hefur aukist um 300 milljónir frá fyrra ári.
Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 90,8 ma.kr. á fyrri helmingi ársins og jókst um 11% að nafnvirði frá fyrra ári og 5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virðisaukaskatti hafa aukist um rúm 15% sem jafngildir rúmlega 9% raunaukningu. Vegna lagabreytingar sem felur í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fer marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins er til skoðunar en sé litið á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánuða kemur fram að verulega hefur hægt á raunvexti tekna af sköttum sem lagðir eru á vöru og þjónustu. Af helstu einstökum liðum veltutengdra skatta er stærsta aukningin í sköttum á olíu og þungaskatti. Mesta lækkun tekna er af vörugjöldum af ökutækjum en þau skiluðu 19,4% minni tekjum en á sama tíma í fyrra. Nýskráningar bifreiða á fyrri helmingi ársins voru 21,5% færri en á sama tíma 2006. Nýskráning bifreiða er þó að taka við sér og var júní þriðji hæsti mánuðurinn frá upphafi.
Greidd gjöld nema 175, ma.kr. og hækka um 22 ma.kr. milli ára, eða 14,6%. Mest aukning er vegna almannatrygginga og velferðarmála 5,4 ma.kr. og vegna efnahags- og atvinnumála 4,9 ma.kr. Greiðslur vegna almennrar opinberrar þjónustu hækka um 4,4 ma.kr. milli ára, greiðslur vegna heilbrigðismála hækka um 4 ma.kr. milli ára og menntamál um 2,3 ma.kr. Vaxtagreiðslur hækka um 2,1 ma.kr.
Lántökur ársins nema 49,7 ma.kr. og hækka um 33,5 ma.kr. milli ára, mest vegna 26,9 ma.kr. lántöku vegna kaupa á Landsvirkjun.
2 ma.kr. voru greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs. Staða á sjóðs- og bankareikningum versnaði um 27,5 ma.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins.
Tekjur ríkissjóðs janúar – júní 2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2005 |
2006 |
2007 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
148.057 |
172.169 |
196.121 |
|
18,7 |
16,3 |
13,9 |
Skattar á tekjur og hagnað |
48.725 |
65.047 |
77.264 |
|
15,5 |
33,5 |
18,8 |
Tekjuskattur einstaklinga |
34.156 |
38.315 |
44.126 |
|
10,3 |
12,2 |
15,2 |
Tekjuskattur lögaðila |
4.820 |
12.787 |
12.383 |
|
-1,2 |
165,3 |
-3,2 |
Skattur á fjármagnstekjur |
9.750 |
13.945 |
20.756 |
|
54,2 |
43,0 |
48,8 |
Eignarskattar |
7.497 |
5.449 |
5.494 |
|
56,8 |
-27,3 |
0,8 |
Skattar á vöru og þjónustu |
74.415 |
81.743 |
90.767 |
|
18,9 |
9,8 |
11,0 |
Virðisaukaskattur |
52.290 |
56.145 |
64.697 |
|
21,0 |
7,4 |
15,2 |
Vörugjöld af ökutækjum |
5.120 |
5.879 |
4.736 |
|
76,3 |
14,8 |
-19,4 |
Vörugjöld af bensíni |
3.887 |
4.265 |
4.334 |
|
-1,2 |
9,7 |
1,6 |
Skattar á olíu |
2.603 |
2.903 |
3.278 |
|
14,5 |
11,5 |
12,9 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
5.129 |
5.338 |
5.615 |
|
6,3 |
4,1 |
5,2 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
5.386 |
7.213 |
8.106 |
|
-1,5 |
33,9 |
12,4 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
1.511 |
1.601 |
2.292 |
|
5,7 |
5,9 |
43,2 |
Aðrir skattar |
337 |
375 |
513 |
|
. |
11,1 |
37,0 |
Tryggingagjöld |
15.571 |
17.955 |
19.790 |
|
15,8 |
15,3 |
10,2 |
Fjárframlög |
234 |
306 |
470 |
|
37,7 |
30,9 |
53,6 |
Aðrar tekjur |
17.010 |
10.065 |
14.536 |
|
95,7 |
-40,8 |
44,4 |
Sala eigna |
239 |
287 |
6.787 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
165.539 |
182.826 |
217.913 |
|
23,9 |
10,4 |
19,2 |
Gjöld ríkissjóðs janúar – júní 2007
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2005 |
2006 |
2007 |
|
2006 |
2007 |
Almenn opinber þjónusta |
26.349 |
20.689 |
25.102 |
|
-21,5 |
21,3 |
Þar af vaxtagreiðslur |
14.393 |
6.728 |
8.850 |
|
-53,3 |
31,5 |
Varnarmál |
160 |
266 |
303 |
|
66,2 |
14,0 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
5.347 |
6.979 |
7.833 |
|
30,5 |
12,2 |
Efnahags- og atvinnumál |
12.176 |
19.038 |
23.921 |
|
56,4 |
25,6 |
Umhverfisvernd |
1.418 |
1.679 |
1.714 |
|
18,4 |
2,1 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
215 |
204 |
220 |
|
-5,1 |
8,1 |
Heilbrigðismál |
38.357 |
41.176 |
45.156 |
|
7,3 |
9,7 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
6.406 |
6.855 |
8.095 |
|
7,0 |
18,1 |
Menntamál |
16.123 |
18.219 |
20.241 |
|
13,0 |
11,1 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
29.905 |
33.617 |
39.016 |
|
12,4 |
16,1 |
Óregluleg útgjöld |
3.433 |
4.440 |
3.909 |
|
29,3 |
-12,0 |
Gjöld alls |
139.890 |
153.160 |
175.509 |
|
9,5 |
14,6 |