Starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar
Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar. Starfið er mjög fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna. Um er að ræða fullt starf.
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun eða sambærilega menntun. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningum starfsmanna Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst 2007.