Hoppa yfir valmynd
7. september 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félagsmálaráðherra kallar eftir samstarfi ASÍ og Vinnumálastofnunar um eftirlitsátak með réttindum og kjörum erlendra starfsmanna

Í ljósi framkominna upplýsinga og rökstudds gruns um að fjöldi fyrirtækja er starfa hér á landi hafi látið hjá líða að tilkynna til Vinnumálastofnunar um ráðningu erlendra starfsmanna og upplýsa um réttindi þeirra og kjör hefur félagsmálaráðherra kallað eftir eftirlitsátaki og hertum aðgerðum Vinnumálastofnunar til úrbóta.

Samhliða þeirri vinnu sem nú á sér stað í starfshópi á vegum félagsmálaráðuneytisins hefur ráðherra mælst til þess að Vinnumálastofnun hefji þegar vinnu við afmörkuð verkefni er lúta að eftirlitinu, að skýr skilaboð verði gefin út um að ekki sé annað liðið en að fyrirtæki, innlend sem erlend, virði íslensk lög og að viðurlögum í lögum verði beitt með markvissum og samræmdum hætti eftir því sem ástæða er til.

Meginmarkmið með eftirlitinu og aðgerðum Vinnumálastofnunar er að tryggja að hinir erlendu starfsmenn búi við sambærileg kjör og aðbúnað og íslenskir starfsmenn og að ekki sé brotinn á þeim réttur samkvæmt gildandi lögum, reglum og kjarasamningum hér á landi.

Félagsmálaráðherra hefur jafnframt óskað eftir nánu samstarfi við ASÍ um framkvæmdina og mun funda með fulltrúum ASÍ og Vinnumálastofnunar um málið.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum