Hoppa yfir valmynd
11. september 2007 Dómsmálaráðuneytið

Löggildingarpróf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka

Löggildingarpróf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka verða haldin í febrúar 2008, að undangengnu kynningar- og undirbúningsnámskeiði á vegum Þýðingarseturs Háskóla Íslands. Kynningarfundur fyrir þá sem hyggjast þreyta löggildingarpróf verður haldinn fimmtudaginn 18. október nk. kl. 16:30 í kjallara Odda, Háskóla Íslands, 101 Reykjavík. Námskeiðið fer fram á sama stað laugardagana 20. okt., 27. okt., 3. nóv. og 10. nóv. nk. frá kl. 10-16. Próftökum er skylt að sækja námskeiðið.

Umsóknir á eyðublöðum sem fást hjá sýslumanninum á Hólmavík og hér á vef dómsmálaráðuneytisins skulu berast sýslumanninum á Hólmavík, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík, í síðasta lagi föstudaginn 12. október nk. Prófgjald, að fjárhæð kr. 85.000,-, skal greiða inn á reikning embættisins nr. 0316-13-30032, kt. 570269-5189, og skal staðfesting á greiðslu fylgja umsóknum. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sýslumannsins í síma 455 3500.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum