Hoppa yfir valmynd
14. september 2007 Matvælaráðuneytið

Hvannarlambakjöt bragðast vel

Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Ingu Lind Karlsdóttur stjórnanda "Ísland í dag" var boðið í mat í gær af Matís til að bragða á nýstárlegu lambakjöti, þ.e. af lömbum sem beitt var á hvönn í sumar. Meistarakokkar á veitingahúsinu Vox matreiddu innanlæri af hvannarlambi og lambi sem gekk í hefðbundnu beitarlandi og báru gestirnir það saman. Kjötið bragðaðist mjög vel og var greinilegur munur á því. Lýsti ráðherra ánægju sinni með slíka nýsköpun í landbúnaði. Það verði spennandi að fylgjast með framganginum og þetta sé lýsandi fyrir þá miklu möguleika sem séu fyrir hendi í framleiðslu landbúnaðarvara.

Matís (Matvælarannsóknir Íslands) hefur unnið að rannsókn á áhrifum hvannarbeitar á bragðgæði lambakjöts og samkvæmt mati sérþjálfaðs hóps reyndust hvannalömbin hafa meiri kryddlykt og ?bragð, en lömb í hefðbundnu beitarlandi höfðu meira lambakjötsbragð.

Verkefnið er að frumkvæði Höllu Steinólfsdóttur og Guðmundar Gíslasonar sauðfjárbænda að Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Þau hyggjast ala ákveðinn fjölda lamba í beitarhólfi með hvönn. Til samanburðar verður öðrum lömbum komið fyrir í úthagabeit og á ræktuðu landi. Markmiðið er að rækta upp hvannarakur til að beita lömbunum á og hefja framleiðslu á lambakjöti sem byggir á þessari aðferð.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum