Ljóðið Nótt frá Svignaskarði
Landbúnaðarráðuneytið veitti á sl. ári styrk til Hjartar Pálssonar til útgáfu á verðlaunaljóði hans Nótt frá Svignaskarði. Fyrir ljóðið hlaut höfundur viðurkenninguna Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2002. Útgáfan er annars vegar prentun á stóra örk A-3 til innrömmunar og hins vegar einu broti með viðeigandi kápu.
Í tilefni útgáfunnar færði höfundurinn Hjörtur Pálsson, landbúnaðarráðherra, Einari Kristni Guðfinnssyni eintak af ljóðinu í viðhafnarútgáfu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af þeim ásamt Níelsi Árna Lund, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu.