Hoppa yfir valmynd
20. september 2007 Matvælaráðuneytið

Kynningarfundur um nýja Norðurslóðaáætlun

Almennur kynningarfundur um nýja Norðurslóðaáætlun tímabilið 2007-2013 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 25.september n.k.

Á fundinum verður farið yfir nýjar áherslur áætlunarinnar, umsóknarferla og reynslu af þátttöku í fyrri áætlun, ásamt því sem gerð verður grein fyrir verkefnishugmyndum sem eru í vinnslu. Að loknum erindum verða pallborðsumræða.

Dagskrá fundar um nýja Norðurslóðaáætlun

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum