Málþing um læsi og lestrarfærni fullorðinna á vinnumarkaði
Menntamálaráðuneytið boðar til málþings um læsi fullorðinna á vinnumarkaði. Markmið málþingsins er að miðla upplýsingum og skiptast á skoðunum um læsi fullorðinna í atvinnulífinu og er það haldið í beinu framhaldi af viku símenntunar 2007 þar sem fræðsluaðilar voru hvattir til að huga sérstaklega að lestrarörðugleikum á vinnustöðum.
Fundarstjóri er Stefán Stefánsson deildarstjóri símenntunardeildar menntamálaráðuneytisins.
Dagskrá:
kl. 13:30 Setning fundar - Stefán Stefánsson deildarstjóri símenntunardeildar menntamálaráðneytisins
kl. 13:40 Læsi fullorðinna í atvinnulífinu - Guðmundur B. Kristmundsson dósent KHÍ
kl. 14:10 Sjónarhorn fyrirtækja - Ingi Bogi Bogason sviðsstjóri menntunar og mannauðs Samtökum iðnaðarins
kl. 14:30 Aftur í nám? Að ná árangri - Reynslusaga nemanda hjá Mími símenntun
kl. 14:50 Ný tækifæri - Tvö mismunandi læsisnámskeið sem lýst er í námsskrám frá FA. Sigrún Jóhannesdóttir verkefnastjóri hjá FA
kl. 15:10 Kaffihlé
kl. 15:30 Sjónarhorn fræðsluaðila - Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
kl. 15:50 Staðan og hugmyndir um áherslur og úrbætur. Umræður undir stjórn fundarstjóra
kl. 16:30 Fundarslit