Áherslur umhverfisráðherra á kjörtímabilinu
Gefið hefur verið út rit um áherslur Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á kjörtímabilinu. Í inngangi ritar umhverfisráðherra að í ritinu birtist sýn hans á helstu verkefni í ráðuneyti umhverfismála á kjörtímabilinu 2007 til 2011. Með ritinu sé fólki gefið tækifæri til að kynna sér áherslur ráðherra í umhverfismálum. Auk þess geti upptalning áhersluatriða einnig nýst sem mælistika á árangur og veitt aðhald í daglegum störfum.
Áherslur umhverfisáðherra (pdf-skjal).